Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Casemiro: Man Utd er besta lið Englands og topp þrjú í heiminum
Casemiro
Casemiro
Mynd: EPA
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro segir Manchester United vera besta lið Englands og setur það á lista yfir þrjú bestu félög heims, en þetta sagði hann á Youtube-rásinni AwayDays.

Casemiro gekk í raðir Man Utd frá Real Madrid árið 2022 og verið með mikilvægustu mönnum liðsins á þeim tíma.

Hann, Ayden Heaven og Leny Yoro voru fengnir í þátt til að verja uppáhalds retró-treyjur, sem er það sem þátturinn gengur út á, en þar ræddi Ellis Platten, stjórnandi þáttarins, við leikmennina og spurði þá nokkurra spurninga.

Þar var Casemiro meðal annars spurður út í dvöl sína hjá Man Utd og sparaði hann ekki yfirlýsingarnar.

„Þetta er mér ótrúlega kært því þetta er besta lið Englands og er á topp þrjú yfir bestu félög heims. Þetta er mjög sérstakt því ég spilaði í Madríd og hef spilað fjögur ár hér. Leikvangurinn, félagið, fólkið og allt er mjög sérstakt og er ég mjög ánægður hér,“ sagði Casemiro í þættinum.

Hann valdi nokkrar áhugaverðar treyjur, þar á meðal treyju Cristiano Ronaldo frá tímabilinu 2021-2022. Hægt er að sjá þáttinn hér fyrir neðan.


Slapp
banner
banner