„Mér líður ágætlega bara, hann er búinn að vera stór hluti af þessu liði og þessum hóp í eitt og hálft ár. Hann er rosalega öflugur leikmaður, býr mikið í honum og kannski að einhverju leyti meira en hann hefur sýnt hingað til. Og ég held að hann muni ná því hjá Val," segir Jökull Elísabetarson. þjálfari Stjörnunnar, við Fótbolta.net.
Samúel Kári Friðjónsson (1996) var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Vals en félagið keypti hann af Stjörnunni. Samúel var í rúmt tímabil í Garðabænum.
Hann kom frá gríska félaginu Atromitos eftir að hafa verið í rúman áratug erlendis sem atvinnumaður.
Samúel Kári Friðjónsson (1996) var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Vals en félagið keypti hann af Stjörnunni. Samúel var í rúmt tímabil í Garðabænum.
Hann kom frá gríska félaginu Atromitos eftir að hafa verið í rúman áratug erlendis sem atvinnumaður.
„Stundum er þetta bara svona, hlutverkin eru ekki nákvæmlega eins og báðir aðilar sjá fyrir sér og hann skilur við okkur í góðu."
„Fyrir mér er hann frábær karakter og leikmaður og ég hef miklar mætur á honum. Ég raunverulega vona að honum gangi vel og held með honum."
„Varðandi hópinn, þá held ég að við munum skoða það hvort við þurfum að styrkja á móti eða bæta einhverju við. Metum hvort að hópurinn þynnist með þeim hætti að við teljum að við getum ekki barist í öllu sem við ætluðum."
Samúel var á bekknum á móti FH, hugsaðir þú þá að það gæti verið hans síðasti leikur með Stjörnunni?
„Nei nei, þetta (viðræðurnar) byrjaði ekki fyrr en eftir þann leik. Það var ekkert sem við vissum af fyrir leik, ekki fyrr en um helgina."
Slúðrað hefur verið um að kaupverðið sé hátt, það sé á bilinu 12-16 milljónir króna. Er hægt að horfa á að það hafi komið of gott tilboð til að segja nei við?
„Ég veit það ekki. Hann er öflugur leikmaður og öflugur leikmaður kostar slatta. Ég held að kaupverðið sé frekar eðlilegt. Við hugsuðum þetta ekki þannig að það hafi verið of gott til að segja nei við."
„Það þarf meira að gerast, leikmaðurinn þarf að vera tilbúinn að fara og sjá meiri tækifæri í að vera annars staðar."
„Það er ekki bara það að það komi tilboð og við segjum já, það eru alls konar samræður sem eiga sér stað sem leiða til þess að við samþykkjum eitthvað tilboð," segir Jökull.



