Úkraínumaðurinn Ruslan Malinovskyi mun yfirgefa Mikael Egil Ellertsson og félaga í Genoa í sumar og ganga í raðir Trabzonspor í Tyrklandi, en þetta segir ítalski félagaskiptakóngurinn Fabrizio Romano á X.
Samningur Malinovskyi rennur út eftir þetta tímabil og mun hann ekki fá nýjan samning.
Miðjumaðurinn, sem skoraði tvö mörk gegn Íslandi í undankeppni HM undir lok síðasta árs, hefur verið samningsbundinn Genoa síðustu þrjú ár og er nú komið að kveðjulokum.
Romano segir hann vera á leið til Tyrklands, nánar tiltekið Trabzonspor, en viðræður eru komnar langt á veg og ætti allt að vera frágengið á næstu vikum.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur skorað sex deildarmörk með Genoa á þessu tímabili.
Hann á þá 70 A-landsleiki og 10 mörk fyrir Úkraínu og farið tvisvar á EM.



