Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Horsens unnu mikilvægan 4-1 sigur á Breka Baldurssyni og hans mönnum í Esbjerg í meistarariðli dönsku B-deildarinnar í kvöld.
Horsens er komið á skrið á hárréttum tímapunkti tímabilsins, en það er taplaust í síðustu fjórum leikjum þar sem það hefur unnið þrjá og gert eitt jafntefli.
Guðlaugur Victor lék allan leikinn í vörninni hjá Horsens sem heldur áfram að klifra upp töfluna en liðið er í 4. sæti með 40 stig, aðeins þremur stigum frá sæti í úrvalsdeildina. Breki var ónotaður varamaður hjá Esbjerg sem er í 3. sæti með 42 stig.
Horsens á eftir að spila sex leiki á tímabilinu, þar af fjóra gegn liðunum sem eru ofar á töflunni.
Landsliðsmaðurinn hefur spilað 19 leiki og komið að tveimur mörkum síðan hann gekk í raðir félagsins frá Plymouth á síðasta ári.



