Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo feðgar gætu æft saman í næstu viku
Cristiano Jr spilar með yngri landsliðum Portúgals
Cristiano Jr spilar með yngri landsliðum Portúgals
Mynd: EPA
Sádi-arabíska félagið Al Nassr er að íhuga það að kalla Cristiano Jr, son Cristiano Ronaldo, á æfingar með aðalliðinu í næstu viku, en þetta segir miðillinn AlWeamNews.

Ronaldo yngri fagnar 16 ára afmæli sínu í sumar og er Al Nassr að skoða næstu skref leikmannsins.

Hann er fastamaður í yngri landsliðum Portúgals og verið að heilla með unglingaliðum Al Nassr.

Nú stendur til að kalla hann á æfingar með aðalliðinu og fær hann þar að upplifa það sérstaka augnablik að æfa með föður sínum.

Félagið fylgist náið með þróun leikmannsins og alls ekki útilokað að hann fái að vera í hóp áður en tímabilinu lýkur.

Það er eflaust ósk Ronaldo að spila með syni sínum áður en hann leggur skóna á hilluna, svipað og við sáum með LeBron og Bronny James í NBA-deildinni í Bandaríkjunum.

Ronaldo og félagar eru mögulega einum leik frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn, en til þess þarf liðið að vinna næsta leik og Al Hilal að tapa. Þá ætti Al Nassr tvo leiki inni og kæmi ekkert á óvart ef félagið skapa eftirminnilega stund með því að leyfa feðgunum að deila velli.

Það yrði ekki í fyrsta sinn í sögunni sem feðgar deila velli í efstu deild. Aleksei Yeryomenko og sonur hans Alexei unnu finnsku úrvalsdeildina tvö ár í röð. Rivaldo og sonur hans Rivaldinho spiluðu með Mirim í brasilísku B-deildinni árið 2015.

Arnór Guðjohnsen og Eiður Smári voru nálægt þessu magnaða afreki í vináttulandsleik gegn Eistlandi árið 1996. Arnór var í byrjunarliðinu en Eiður á bekknum. Logi Ólafsson var þjálfari A-landsliðsins og hefur áður talað um að hafa það á samvisku sinni að hafa ekki spilað þeim saman.
Slapp
banner
banner