Áföllin halda áfram að dynja á Liverpool en georgíski markvörðurinn Giorgi Mamardashvili fór meiddur af velli á sjúkrabörum í 2-1 sigrinum á Everton í borgarslagnum í gær.
Mamardashvili hefur leyst Alisson af síðustu vikur og er ætlað að taka við markvarðarstöðunni þegar sá brasilíski ákveður að fara frá Liverpool.
Alisson er að glíma við meiðsli og bætti það gráu ofan á svart þegar Mamardashvili meiddist í gær.
Það gerðist í jöfnunarmarkinu sem Beto skoraði í síðari hálfleik, en þá lenti Beto og Andy Robertson á Mamardashvili sem gat ekki haldið leik áfram.
Hann var fluttu með sjúkrabörum af velli og þaðan á spítala, en batahorfurnar eru góðar.
„Hann var fluttur upp á spítala. Mér fannst þetta líta út fyrir að vera opið sár og það fékk ég síðan staðfest af læknunum. Þetta eru ekki langtímameiðsli, en sjáum til hvort hann verði klár í næstu viku,“ sagði Slot eftir leikinn.
Freddie Woodman kom inn á í hans stað, en hann var að þreyta frumraun sína með Liverpool. Hann kom til félagsins frá Preston á síðasta ári.
Liverpool er með sjö stiga forystu í baráttu um Meistaradeildarsæti þegar fimm umferðir eru eftir.


