Evrópumeistarar Paris Saint-Germain gætu verið án portúgalska miðjumannsins Vitinha í fyrri leiknum gegn Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í næstu viku.
Flestir eru sammála um það að Vitinha sé einn allra besti miðjumaður heims.
Hann var potturinn og pannan á miðsvæði PSG sem varð Evrópumeistari í fyrsta sinn á síðasta ári og verið í mikilvægu hlutverki hjá portúgalska landsliðinu sem er á leið á HM í sumar.
Vitinha byrjaði hjá PSG í 2-1 tapinu gegn Lyon í dag, en gat ekki klárað fyrri hálfleikinn vegna meiðsla.
Portúgalinn lenti illa eftir skallaeinvígi og gat ekki haldið leik áfram, en óvíst er hvort hann geti verið með í næstu viku.
Þetta er annað áfallið fyrir undanúrslitin, en Bayern verður án Serge Gnabry sem reif vöðva í læri og verður frá næstu mánuði.


