Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 21:50
Brynjar Ingi Erluson
Gerðist síðast sama ár og Titanic sökk
Mynd: EPA
Chelsea tapaði fimmta deildarleik sínum í röð er það laut í lægra haldi fyrir Brighton, 3-0, á AMEX-leikvanginum í kvöld.

Lundúnaliðið hefur verið í mikilli lægð síðustu vikur og tapað sex leikjum af þeim þrettán sem Liam Rosenior hefur stýrt liðinu.

Fimmta tapið í röð kom í kvöld var einnig sögulegt fyrir Chelsea því það hefur ekki skorað í neinum af þessum fimm leikjum, eitthvað sem hefur ekki gerst síðan 1912, árið sem farþegaskiptið Titanic sökk á Norður-Atlantshafi.

Rosenior hefur tapað fleiri leikjum en Enzo Maresca á tímabilinu og það í færri leikjum.

Vonir Chelsea um að komast í Meistaradeildina fjarlægjast með hverjum leiknum. Liðið er sjö stigum frá fimmta sætinu sem gefur þátttöku í Meistaradeildina.

Chelsea þarf nú að binda vonir við að Aston Villa verði Evrópudeildarmeistari og hafni í fimmta sætinu, þá mun sjötta sætið gefa farseðil í Meistaradeildina.


Slapp
banner
banner