Það voru nokkur vafaatriði í 2. umferð Bestu deildarinnar þegar kom að vítaspyrnudómum. Fjögur víti voru dæmd í umferðinni og voru þrír dómar að margra mati rangir.
Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, um atvikin sem hægt er að sjá í fréttinni hér að neðan.
Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, um atvikin sem hægt er að sjá í fréttinni hér að neðan.
Fyrsta vítið sem Þóroddur var spurður út í var vítið sem dæmt var á Viktor Jónsson (ÍA) þegar Ívar Örn Árnason (Breiðablik) skaut í átt að marki Skagamanna, boltinn fór af lærinu á Viktori og upp í hönd hans. Jóhann Ingi Jónsson, dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu.
„Reglan er þannig að það er ekki hendi ef boltinn hrekkur af eigin líkama og upp í höndina, NEMA ef höndin er fyrir ofan haus - í ónáttúrulegri stöðu. Ef skotið er að marki og varnarmaður teygir sig og er með höndina fyrir ofan haus, þá er hann að taka áhættu og rétt að dæma víti. Það er rétt að oftast er það ekki víti ef boltinn hrekkur í höndina af eigin líkama, en það er ekki rangt að dæma ef höndin er fyrir ofan höfuð. Það er því ekki hægt að segja að ákvörðun Jóhanns dómara sé röng, hönd Viktors var fyrir ofan haus og skotið var að marki," segir Þóroddur sem viðurkennir að reglan um hvenær eigi að dæma hendi þegar bolti fer í hönd sé ekki alltaf klippt og skorin.
„Við skiljum alveg umræðuna, en Viktor er með höndina í ónáttúrulegri stöðu og býður hættunni heim."
Þóroddur er að vinna að því að fá útgáfu af VAR fyrir íslensku deildina og segir að endursýningar hefðu getað hjálpað með tvö vítaatvik í síðustu umferð. Annars vegar vítaspyrnuna sem FH fékk eftir að Örvar Eggertsson, leikmaður Stjörnunnar renndi sér inn á eigin vítateig og náði til boltans, og hins vegar vítið sem ÍA vildi fá þegar boltinn virtist fara í hönd Höskulds Gunnlaugssonar. FH fékk víti sem hefði ekki átt að vera dæmt og ÍA hefði átt að fá víti.
„Við hefðum getað dæmt vítið á Höskuld og hefðum getað leiðrétt vítið í Garðabænum."
En hvað með vítið sem Víkingur fékk á Akureyri þegar Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur) fór niður eftir samstuð við Steinþór Má Auðunsson (KA).
„Steinþór kemur alltof hratt út á móti, kemur hlaupandi út á móti án þess að hugsa nokkuð um mótherjann. Þó að hann hafi kannski eitthvað náð í boltann þá að mati okkar sem förum yfir þetta þá brýtur hann á Víkingnum í leiðinni. Það er víti."
Fjórða vítið var svo dæmt á Yann Emmanuel Affi leikmann Þórs gegn KR.
Þóroddur segir svo að Víkingur hefði átt að fá víti þegar Gunnar Vatnhamar (Víkingur) átti skot í hönd Ásgeirs Helga Orrasonar (Breiðablik) í uppbótartíma opnunarleiksins í Bestu deildinni.




