Elías Rafn Ólafsson átti frábæran leik þegar Midtjylland vann dýrmætan og dramatískan sigur gegn AGF í titilbaráttuslag í dönsku deildinni.
AGF var með öll völd á vellinum og var með 1-0 forystu eftir fyrri hálfleikinn en Elías kom í veg fyrir að munurinn var ekki meiri.
AGF var með öll völd á vellinum og var með 1-0 forystu eftir fyrri hálfleikinn en Elías kom í veg fyrir að munurinn var ekki meiri.
Midtjylland jafnaði metin þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma og sigurmarkið kom síðan þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Eins og fyrr segir átti Elías frábæran leik en Flashscore valdi hann mann leiksins.
AGF er á toppnum með 56 stig en Midtjylland er í 2. sæti, tveimur stigum á eftir þegar fimm umferðir eru eftir.


