Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 16:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gummi Tóta ekki með gegn KA
Fór meiddur af velli gegn Blikum.
Fór meiddur af velli gegn Blikum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Þórarinsson (1992) fór af velli þegar ÍA mætti Breiðabliki á föstudag og samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið verður hann ekki með Skagamönnum þegar þeir taka á móti KA á morgun.

Guðmundur gekk í raðir ÍA í vetur eftir um einn og hálfan áratug í atvinnumennsku. Hann lék síðast með Noah og varð meistari með liðinu. Hann á að baki 16 A-landsleiki.

ÍA mætir KA í Akraneshöllinni klukkan 18:00 á morgun í 3. umferð Bestu deildarinnar.

Þeir Steinar Þorsteinsson, Erik Tobias Sandberg og Rúnar Már Sigurjónsson hafa ekki spilað í fyrstu umferðunum og verða ekki heldur klárir í slaginn á morgun.

Skagamenn eru með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina en KA er án stiga.

miðvikudagur 22. apríl
18:00 ÍA-KA (Akraneshöllin)
18:00 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)

fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Slapp
banner
banner
banner