Það er slatti af áhugaverðum slúðurmolum í pakka dagsins! Óvænt nafn orðað við Liverpool, miðjumaður Man Utd að framlengja og Bernardo Silva er á radarnum hjá Arsenal.
Randal Kolo Muani (27) er óvænt orðaður við Liverpool sem leitar að leikmanni til að fylla skarð Mohamed Salah. Kolo Muani er hjá Tottenham á láni frá Paris St-Germain en hefur aðeins skorað eitt deildarmark fyrir Spurs. Juventus hefur einnig áhuga á honum. (Gazzetta dello Sport)
Enski miðjumaðurinn Kobbie Mainoo (21) hefur náð munnlegu samkomulagi við Manchester United um nýjan fimm ára samning. (Sun)
Bernardo Silva (31) gæti mögulega endað hjá Arsenal eða Barcelona þegar hann yfirgefur Manchester City eftir tímabilið. (ESPN Brazil)
Manchester United hefur áhuga á enska miðjumanninum Elliot Anderson (23) hjá Nottingham Forest og Aurelien Tchouameni (26), franska miðjumanninum hjá Real Madrid. United leitar að leikmanns í stað Casemiro sem fer í sumar. (Telegraph)
Brighton hefur áhuga á að fá markvörðinn James Trafford (23) sem er ósáttur við hlutverk sitt hjá Manchester City. (Florian Plettenberg)
Manchester United og Galatasaray eru tilbúin að berjast um hollenska miðjumanninn Teun Koopmeiners (28) hjá Juventus. (Tuttosport)
Barcelona leiðir kapphlaupið um Eduardo Conceicao (16) framherja Palmeiras. Manchester City, Manchester United og Newcastle hafa einnig áhuga en leikmaðurinn getur ekki fært sig til Evrópu fyrr en hann verður 18 ára á næsta ári. (TeamTalk)
West Ham er tilbúið að losa gríska varnarmanninn Konstantinos Mavropanos (28) í sumar fyrir rétta upphæð. Félög í Þýskalandi hafa áhuga á honum. (Football Insider)
Chelsea og Manchester United eru meðal félaga sem fylgjast með enska miðjumanninum Alex Scott (22) hjá Bournemouth. (Caught Offside)
Leeds hyggst bjóða velska miðjumanninum Ethan Ampadu (25) nýjan samning eftir tímabilið. (Teamtalk)



