Hansi Flick, þjálfari Barcelona, hefur enn og aftur staðfest að félagið verði hans síðasta á þjálfaraferlinum.
Flick hefur þjálfað Barcelona frá 2024 og varð deildarmeistari með liðinu á fyrstu leiktíð sinni.
Hann er ekki að hugsa um að hætta með Barcelona en verið skýr með það að hann vilji ekki þjálfa annað félagslið.
„Barcelona verður síðasta félag mitt, það er alveg öruggt,“ sagði Flick.
Það stendur til að framlengja samning hans við Barcelona og er það enn líklegra eftir að Joan Laporta, forseti félagsins, vann forsetakosningarnar í síðasta mánuði.
Þjálfaraferill Flick spannar þrjátíu ár. Hann var aðstoðarmaður Joachim Löw hjá þýska landsliðinu er það varð heimsmeistari árið 2014 og tók síðar við sem yfirmaður íþróttamála hjá sambandinu.
Hann var ráðinn aðstoðarmaður Niko Kovac hjá Bayern München árið 2019 og tók síðan við liðinu eftir að Kovac var rekinn. Þá fór ferill hans á mikla uppleið og vann hann sjö titla, þar á meðal Meistaradeild Evrópu.
Flick var ráðinn þjálfari þýska landsliðsins árið 2021 en tveimur árum síðar varð hann sá fyrsti í sögunni til að vera rekinn úr starfinu.




