Raheem Sterling mun að öllum líkindum yfirgefa Feyenoord í sumar þegar samningur hans við hollenska félagið rennur út.
Sterling gekk til liðs við hollenska liðið á frjálsri sölu í febrúar eftir að hafa fengið samningi sínum við Chelsea rift.
Sterling gekk til liðs við hollenska liðið á frjálsri sölu í febrúar eftir að hafa fengið samningi sínum við Chelsea rift.
Sterling hefur ekki staðið undir væntingum í Hollandi og því eru engin áform uppi hjá félaginu um að framlengja samning hans.
Frá þessu greina hollenskir miðlar en Sterling hefur komið við sögu í sex leikjum á tímabilinu og lagt upp eitt mark. Hann var ónotaður varamaður í síðasta leik liðsins, sem var gegn Willum Þór Willumssyni og félögum í NEC Nijmegen.




