Það styttist í að Úlfur Ágúst Björnsson snúi heim í Hafnarfjörðinn frá Bandaríkjunum og geti spilað með FH í Bestu deildinni.
Hann er við nám í Duke háskólanum og samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur fengið er stefnt að því að hann verði kominn fyrir leikinn gegn KR á mánudag í 4. umferð Bestu deildarinnar. FH spilar fyrst við Val á morgun í 3. umferðinni.

Sóknarmaðurinn hefur í Duke undanfarin ár og klárar námið á næsta skólaári.
Það eru fleiri leikmenn að snúa frá Bandaríkjunum því Blikinn Dagur Örn Fjeldsted er mættur til Íslands og gæti verið í hópnum gegn Keflavík seinna í dag. Kantmaðurinn var á dögunum orðaður við bæði Vestra og ÍBV.