Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hakimi hraunaði yfir Endrick - „Á bara að spila fótbolta"
Mynd: EPA
Það voru óvænt úrslit í frönsku deildinni í gær þegar Lyon lagði PSG 2-1. PSG er aðeins með eins stigs forystu á Lens á toppnum en á leik til góða.

Endrick, lánsmaður frá Real Madrid, skoraði og lagði upp fyrir Lyon. Hann fagnaði markinu með því að dansa fyrir framan stuðningsmenn PSG. Achraf Hakimi, varnarmaður PSG, brást illa við því og skammaði Endrick.

„Af hverju sagði ég Endrick að slaka á? Svona gerist í leikjum, við ætlum ekki að einbeita okkur að leikmönnum andstæðingana. Ég vildi að liðið mitt væri með einbeitingu og að hann myndi hætta að gera svona fyrir framan stuðningsmennina okkar," sagði Hakimi.

„Hann á bara að spila fótbolta, sérstaklega þar sem hann er efnilegur leikmaður. Það getur farið í taugarnar á manni þegar hann gerir eitthvað sem er ekki hluti af fótbolta, sérstaklega þegar maður er að tapa."

Endrick hefur verið frábær hjá Lyon en hann hefur komið að tíu mörkum í 12 leikjum í deildinni.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner