Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   þri 21. apríl 2026 21:35
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Fyrsti sigur Real Madrid í tæpan mánuð
Mbappe og Vini Jr afgreiddu Alaves
Mbappe og Vini Jr afgreiddu Alaves
Mynd: EPA
Spænska liðið Real Madrid hefur ekki gefið titilbaráttuna upp á bátinn en liðið vann sinn fyrsta deildarsigur í tæpan mánuð er það vann Alaves, 2-1, á Santiago Bernabeu í kvöld.

Kylian Mbappe og Vini Jr skoruðu mörk Madrídinga.

Mbappe gerði fyrra markið eftir frekar klunnalega sókn þar sem Arda Güler vann boltann, sendi hann fyrir aftan Mbappe, sem náði einhvern veginn að halda í hann áður en hann skaut honum af varnarmanni þannig boltinn breytti svakalega um stefnu áður en hann hafnaði í netinu.

Markið hjá Vini Jr var mun huggulegra. Hann fékk boltann frá Federico Valverde og hamraði honum af 30 metra færi í vinstra hornið. Óverjandi fyrir markvörð Alaves.

Gestirnir settu eitt sárabótarmark undir lokin sem Toni Martinez gerði með föstu skoti.

Real Madrid er í öðru sæti með 73 stig, sex stigum á eftir Barcelona sem á leik inni á morgun gegn Celta Vigo.

Real Betis vann Girona, 3-2, á útivelli. Athletic marði 1-0 sigur á Osasuna og þá gerðu Mallorca og Valencia 1-1 jafntefli.

Úrslit og markaskorarar:

Real Madrid 2 - 1 Alaves
1-0 Kylian Mbappe ('30 )
2-0 Vinicius Junior ('50 )
2-1 Toni Martinez ('90 )

Athletic 1 - 0 Osasuna
1-0 Gorka Guruzeta ('16 )
1-0 Ante Budimir ('57 , Misnotað víti)
Rautt spjald: Mikel Jauregizar, Athletic ('90)

Mallorca 1 - 1 Valencia
1-0 Samu ('49 )
1-1 Umar Sadiq ('67 )

Girona 2 - 3 Betis
1-0 Viktor Tsygankov ('7 )
1-1 Marc Roca ('23 )
1-2 Abde Ezzalzouli ('63 )
2-2 Azzedine Ounahi ('67 , víti)
2-3 Rodrigo Riquelme ('80 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 36 30 1 5 91 32 +59 91
2 Real Madrid 35 24 5 6 70 33 +37 77
3 Villarreal 36 21 6 9 67 43 +24 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 39 +21 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 36 14 6 16 31 37 -6 48
8 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
9 Athletic 36 13 5 18 40 53 -13 44
10 Vallecano 35 10 13 12 36 42 -6 43
11 Sevilla 36 12 7 17 46 58 -12 43
12 Osasuna 36 11 9 16 43 47 -4 42
13 Valencia 35 11 9 15 38 50 -12 42
14 Espanyol 36 11 9 16 40 53 -13 42
15 Alaves 36 10 10 16 42 54 -12 40
16 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
17 Mallorca 36 10 9 17 44 55 -11 39
18 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
19 Girona 35 9 12 14 37 52 -15 39
20 Oviedo 35 6 11 18 26 54 -28 29
Slapp
banner