Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Arnar Daði Jóhannesson (Afturelding)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elskaði að skora á Arnar Daða.
Elskaði að skora á Arnar Daða.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Af hverju ert þú kominn?
Af hverju ert þú kominn?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mætir til að halda aga á Þórði Gunnari og Jökli.
Mætir til að halda aga á Þórði Gunnari og Jökli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skemmtilega vitlaus.
Skemmtilega vitlaus.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Segðu upp.
Segðu upp.
Mynd: EPA
Ágætis leikmaður.
Ágætis leikmaður.
Mynd: EPA
Arnar Daði er efnilegur markvörður sem lék sína fyrstu leiki fyrir Aftureldingu, uppeldisfélagið, tímabilið 2021. Hann var svo aðalmarkvörður Aftureldingar fyrri hluta mótsins 2024.

Hann á að baki sjö leiki fyrir yngri landsliðin og var í æfingahópi U21 liðsins í síðasta verkefni. Í dag sýnir Arnar Daði á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Arnar Daði Jóhannesson

Gælunafn: Addi, AD eða AD1 er síðan með nokkur sem eru best geymd í klefanum.

Aldur: 20 verð 21 í sumar

Hjúskaparstaða: Lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti mfl leikurinn minn var sumarið 2021, kom inn á gegn Grindavík í deildinni eftir að spænski keeperinn okkar fékk rautt. Spilaði sirka 20 mín og var kosinn maður leiksins af textalýsandanum. Næsti leikur var minn fyrsti byrjunarliðs leikur og það var minna gaman, tapaði 8-0 á Nesinu

Uppáhalds drykkur: Strawberry lemonade celcius er algjört gúmmelaði

Uppáhalds matsölustaður: KFC í Mosó er besta KFC á landinu

Uppáhalds tölvuleikur: Battlefield 6 er skemmtilegur

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Held ekki

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison Break

Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir

Uppáhalds hlaðvarp: Fm95blö

Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fótbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi Jr fær þann titil

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst:
Gleðilegan kjördag! Takk fyrir frábær samtöl síðustu daga. Minnum á að kosningu lýkur kl. 18 á Uglunni og því mikilvægt að drífa sig í að kjósa! Muna að kjósa í bæði stúdentaráð og háskólaráð! (Er ekki í háskóla en gaman að þessu)

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Dettur ekkert í hug

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Desire Doue var ágætur þegar við mættumst

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Maggi.Net og Júlíus Júlísson upp yngri flokkana

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Pétur Theódór líklega, spilað tvisvar gegn honum og skorað 5 á mig held ég

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Manuel Neuer

Sætasti sigurinn: Þegar við tryggðum okkur sæti í Bestu deildinni með sigri á Keflavík á Laugardalsvelli

Mestu vonbrigðin: Að falla úr Bestu deildinni

Uppáhalds lið í enska: Liverpool

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Aron Sig væri flottur í rauðu

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Ari Hrafn Haraldsson alvöru spilari

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Elmar Kári Enesson Cogic er fáránlega myndarlegur

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Ída Marín Hermannsdóttir

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi engin spurning

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Væri til að bæta reglu að sá sem fiskar víti þarf að taka það sjálfur

Uppáhalds staður á Íslandi: Heima er best

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég var að spila á móti Selfossi í kannski 3. flokki og við vorum að vinna með 3 mörkum eða eitthvað og lítið eftir af leiknum. Síðan fæ ég boltann og byrja að halda á lofti og allt í einu heyri ég í pabba mínum öskra eitthvað á mig og skamma mig. Ekki stoltasta momentið mitt

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já fylgist mikið með handboltanum og pílunni um jólin. Er einnig að skrifa þetta með golfið í gangi

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Puma King

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Danskan er tilgangslaus mín vegna

Vandræðalegasta augnablik: Ætli það sé ekki bara þegar ég var sendur á fund til þjálfarateymisins af einhverjum í liðinu en þjálfararnir vissu ekki að því þannig ég sat bara í mjög óþægilegur áður en Enes gamli spurði hvað ég væri að gera þarna inni

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Býð pakka dílnum Jökli Andréssyni og Þórði Gunnari Hafþórssyni í einhverja grill veislu og svo fengi ég Bjart Bjarma með okkur til að hafa smá aga á hópnum en þetta væri alvöru veisla

Bestur/best í klefanum og af hverju: Óðinn Bjarka, ný mættur og það er eins og ég sé búin að þekkja hann í 15 ár. Bjarni Páll Linnet fær líka shoutout, frábær manneskja

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég sendi Trausta Þráinsson í Survivor, myndi setja aleiguna að hann væri farinn heim eftir 3 daga, algjör mömmustrákur

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Varð bikarmeistari í handbolta í 4. flokki

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Sævar Atli kemur mér alltaf á óvart á hverjum degi með hversu vitlaus hann er

Hverju laugstu síðast: Man ekki tók örugglega einhverja lélega lygi á systir mína

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Þegar við erum að labba í gegnum uppspilið og Enes gamli fer að gjamma, þá lengist sú æfing um korter

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Arne Slot um að segja upp starfi sínu

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Hlakka til að sjá alla á vellinum í sumar! Áfram Afturelding!
Slapp
banner
banner