Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 12:01
Kári Snorrason
Komið að þremur mörkum á 37 mínútum
Ingimar er fæddur árið 2005.
Ingimar er fæddur árið 2005.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Arnar Kristjánsson, leikmaður Þórs, hefur gert sig heldur betur gildandi í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.

Hann hefur byrjað á bekknum í báðum leikjum Þórs en hann hefur engu að síður skorað tvö mörk og lagt upp eitt til viðbótar á 37 mínútum.

Hann skoraði glæsilegt sigurmark á Hlíðarenda í fyrstu umferð og kom að báðum mörkum Þórs á Meistaravöllum síðastliðinn föstudag.

„Það er frábært að hann sé að grípa tækifærin í þessum mínútum í fyrstu tveim leikjunum. Við erum búnir að stæra okkur af því að vera með góða breidd og góðan hóp.

Þá er mikilvægt að þeir sem komi inn af bekknum geri vel,“
sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, aðspurður um Ingimar eftir leikinn gegn KR á föstudag.

Þór fær Fram í heimsókn á nýjum Vís velli fyrir norðan á fimmtudag.

Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Slapp
banner
banner
banner