Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 20:49
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Coventry er deildarmeistari - Leicester féll annað árið í röð
Frank Lampard og Coventry eru deildarmeistarar
Frank Lampard og Coventry eru deildarmeistarar
Mynd: Coventry City
Leicester fallið niður um deild annað árið í röð
Leicester fallið niður um deild annað árið í röð
Mynd: EPA
Frank Lampard og lærisveinar hans í Coventry City eru deildarmeistarar B-deildarinnar árið 2026 eftir að hafa unnið 5-1 sigur á Portsmouth í kvöld. Leicester City féll niður um deild annað árið í röð.

Coventry vann sér sæti í úrvalsdeildina í síðustu umferð og lauk þar með 25 ára eyðimerkurgöngu í neðri deildunum.

Liðið blés síðan til veislu á Coventry Building Society-leikvanginum í Coventry í kvöld.

Haji Wright kom Coventry yfir áður en Ephron Mason-Clarke bætti við öðru í upphafi síðari hálfleiks. Regan Poole, varnarmaður Portsmouth, setti boltann í eigið net tólf mínútum síðar. Adrian Segecic minnkaði muninn áður en Mason-Clarke gerði fjórða markið. Kaine Kesler-Hayden gerði út um leikinn á lokamínútunum við mikinn fögnuð heimamanna.

Coventry er því með 89 stig, tíu stigum meira en Millwall sem er í öðru sætinu. Ipswich er með 76 stig í þriðja sæti og á tvo leiki til góða, en getur ekki náð Coventry.

Leicester City, sem féll úr úrvalsdeildinni á síðasta ári, er fallið niður um deild annað árið í röð.

Sex stig voru dregin af liðinu á tímabilinu fyrir að brjóta fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta ári. Það vann aðeins tvo leiki eftir áramót.

Í kvöld þurfti liðið sigur til þess að eiga möguleika á að halda sér uppi. Það lenti 1-0 undir en kom til baka með mörkum frá James Justin og Luke Thomas, en Oli McBurnie jafnaði metin á 63. mínútu og gerði markið sem sendi Leicester niður í C-deildina.

Agalegt hjá Leicester sem varð Englandsmeistari fyrir tíu árum síðan.

Wrexham marði 1-0 sigur á Oxford United og er í umspilssæti með 70 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Wrexham á að vísu eftir að mæta deildarmeisturum Coventry og síðan toppbaráttuliði Middlesbrough.

Stoke City 1 - 3 Millwall
0-1 Camiel Neghli ('20 )
0-2 Femi Azeez ('55 )
1-2 Caleb Taylor ('60 , sjálfsmark)
1-3 Josh Coburn ('69 )

QPR 1 - 2 Swansea
0-1 Ronald Pereira Martins ('2 )
0-2 Zan Vipotnik ('80 , víti)
1-2 Rhys Norrington-Davies ('90 )

Coventry 5 - 1 Portsmouth
1-0 Haji Wright ('12 )
2-0 Ephron Mason-Clark ('47 )
3-0 Regan Poole ('50 , sjálfsmark)
3-1 Adrian Segecic ('69 )
4-1 Ephron Mason-Clark ('76 )
5-1 Kaine Kesler-Hayden ('90 )

Southampton 2 - 2 Bristol City
0-1 Ryan Manning ('5 , sjálfsmark)
1-1 Cyle Larin ('29 )
1-2 Sam Bell ('63 )
2-2 Ross Stewart ('74 )

Oxford United 0 - 1 Wrexham
0-1 Josh Windass ('40 )

West Brom 3 - 0 Watford
1-0 Isaac Price ('21 )
2-0 Daryl Dike ('41 )
3-0 Danny Imray ('69 )

Leicester City 2 - 2 Hull City
0-1 Liam Millar ('18 )
1-1 Jordan James ('52 , víti)
2-1 Luke Thomas ('54 )
2-2 Oli McBurnie ('63 )

Norwich 2 - 1 Derby County
0-0 Mohamed Toure ('9 , Misnotað víti)
1-0 Mohamed Toure ('33 )
1-1 David Ozoh ('54 )
2-1 Liam Gibbs ('60 )


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 44 26 11 7 90 44 +46 89
2 Millwall 44 23 10 11 61 48 +13 79
3 Ipswich Town 42 21 13 8 73 44 +29 76
4 Southampton 44 21 13 10 77 53 +24 76
5 Middlesbrough 43 20 13 10 64 44 +20 73
6 Wrexham 44 19 13 12 66 60 +6 70
7 Hull City 44 20 10 14 67 63 +4 70
8 Derby County 44 19 9 16 63 55 +8 66
9 Norwich 44 19 7 18 61 53 +8 64
10 Swansea 44 17 9 18 53 57 -4 60
11 Bristol City 44 16 11 17 56 57 -1 59
12 QPR 44 16 10 18 59 67 -8 58
13 Sheffield Utd 43 17 6 20 61 59 +2 57
14 Birmingham 43 15 12 16 52 53 -1 57
15 Watford 44 14 15 15 52 56 -4 57
16 Preston NE 43 14 15 14 50 55 -5 57
17 Stoke City 44 15 10 19 50 51 -1 55
18 West Brom 44 13 13 18 47 56 -9 52
19 Portsmouth 44 13 12 19 45 62 -17 51
20 Charlton Athletic 43 12 14 17 40 52 -12 50
21 Blackburn 44 12 13 19 39 54 -15 49
22 Oxford United 44 10 14 20 41 56 -15 44
23 Leicester 44 11 15 18 56 67 -11 42
24 Sheff Wed 43 1 12 30 26 83 -57 -3
Slapp
banner
banner