Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Powerade
Aurelien Tchouameni.
Aurelien Tchouameni.
Mynd: EPA
Alessandro Bastoni.
Alessandro Bastoni.
Mynd: EPA
Newcastle er tilbúið að selja Anthony Gordon fyrir rétta upphæð. Manchester United og Liverpool ætla að styrkja sig í sumar. Þetta og fleira í slúðurpakkanum.

Newcastle mun selja Anthony Gordon (25) til Bayern München ef Þýskalandsmeistararnir ganga að 75 milljóna punda verðmiða. (Times)

Manchester United ætlar að fá að minnsta kosti tvo miðjumenn í sumar og fylgist grannt með stöðu franska landsliðsmannsins Aurelien Tchouameni (26) hjá Real Madrid. (Telegraph)

Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig er efstur á óskalista Liverpool til að fylla skarð Mohamed Salah (33). (Florian Plettenberg)

Atletico Madrid hefur áhuga á argentínska varnarmanninum Cristian Romero (27) hjá Tottenham. (Caught Offside)

Enski miðjumaðurinn Curtis Jones (25) er ósáttur við hlutverk sitt hjá Liverpool og gæti farið í sumar. (Football Insider)

Manchester City og Liverpool eru að missa af varnarmanninum Alessandro Bastoni (27) sem er á leið frá Inter til Barcelona. (Mundo Deportivo)

Liverpool er meðal félaga sem hafa áhuga á franska miðjumanninum Enzo le Fee (26) hjá Sunderland. (Teamtalk)

Chelsea hefur sett sig í samband við umboðsmann þýska kantmannsins Karim Adeyemi (24) hjá Borussia Dortmund. (Fussballdaten)

Everton er líklegast til að fá enska miðjumanninn Hayden Hackney (23) frá Middlesbrough í sumar. (Teamtalk)

Búist er við því að enski miðvörðurinn John Stones (31) fari frá Manchester City á frjálsri sölu í sumar. (Fabrizio Romano)
Slapp
banner
banner
banner