Slúðurpakkinn er hnitmiðaður í dag. Arsenal og Chelsea hafa áhuga á leikmanni Tottenham og stjóri Aston Villa er á blaði hjá Manchester United.
Sænski miðjumaðurinn Lucas Bergvall (20) er undir smásjám margra félaga en Arsenal og Chelsea eru meðal áhugasamra félaga. (Caught Offside)
Luis Campos, íþróttastjóri Paris St-Germain, hefur átt í viðræðum við umboðsmenn brasilíska framherjans Gabriel Martinelli (24) hjá Arsenal og vængmannsins Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig. (L'Equipe)
Bournemouth er tilbúið að selja franska framherjann Eli Junior Kroupi (19) sem er á óskalista Manchester United. Hann er verðlagður á rúmlega 50 milljónir punda. (Football Insider)
Unai Emery stjóri Aston Villa er á radarnum hjá Manchester United og Real Madrid en Villa er bjartsýnt á að halda honum. (Teamtalk)
Leeds vill fá tékkneska varnarmanninn Ladislav Krejci (27) frá Wolves. (Express & Star)
Southampton telur líklegt að félagið nái að halda brasilíska vængmanninum Leo Scienza (27) þrátt fyrir áhuga Leeds. (Football Insider)
Umboðsmaður pólska sóknarmannsins Robert Lewandowski (37) mun funda með Juventus í þessari viku. AC Milan hefur einnig áhuga. (La Gazzetta dello Sport)
Danski varnarmaðurinn Andreas Christensen (30) hefur hafnað tilboði frá Barcelona um nýjan samning en vonast til að vera áfram hjá félaginu. (Mundo Deportivo)

