Það var ljóst í kvöld að Wolves er fallið niður í Championship deildina eftir markalaust jafntefli Crystal Palace og West Ham.
Wolves hefur verið í vandræðum frá fyrstu umferð og setið sem fastast á botninum. Nathan Shi, formaður félagsins, sendi stuðningsmönnum liðsins skilaboð í kvöld.
Wolves hefur verið í vandræðum frá fyrstu umferð og setið sem fastast á botninum. Nathan Shi, formaður félagsins, sendi stuðningsmönnum liðsins skilaboð í kvöld.
„Staðfesting á falli okkar er erfið stund fyrir alla sem tengjast Wolves. Þó að þetta séu mikil vonbrigði hefur verið unnið að því síðan ég kom í desember að tryggja að við séum tilbúin að bregðast við með skýrleika og sannfæringu," segir Shi.
„Það er ljóst hvað við þurfum að bæta og við einbeitum okkur nú að því að styrkja félagið, byggja upp skriðþunga og búa til lið sem stuðningsmenn hafa trú á. Við vitum hvað þarf til og munum nálgast komandi mánuði af ásettu ráði.“



