Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 20:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Lecce náði í stig gegn Fiorentina
Mynd: EPA
Lecce 1 - 1 Fiorentina
0-1 Jack Harrison ('30 )
1-1 Tiago Gabriel ('71 )

Lecce fékk Fiorentina í heimsókn í fallbaráttuslag í ítölsku deildinni í kvöld. Albert Guðmundsson spilaði klukkutíma í liði Fiorentina en Þórir Jóhann Helgason sat allan tímann á bekknum hjá Lecce.

Fiorentina komst yfir eftir hálftíma leik þegar Jack Harrison, lánsmaður frá Leeds, skoraði með góðu skoti í fjærhornið úr teignum.

Lecce var með öll völd á vellinum í seinni hálfleik og náði loksins að jafna metin þegar Tiago Gabriel skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Antonio Gallo og bjargaði stigi fyrir Lecce.

Lecce er í 18. sæti með 28 stig, jafn mörg stig og Cremonese sem er í öruggu sæti. Fiorentina er í 15. sæti með 36 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner