Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Rosenior trúði varla eigin augum - „Erfiðasta kvöld ferilsins“
Liam Rosenior
Liam Rosenior
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Enski stjórinn Liam Rosenior var vonsvikinn með frammistöðu sinna manna í Chelsea í 3-0 tapinu gegn Brighton í kvöld og segist aldrei hafa orðið vitni að öðru eins.

Chelsea tapaði fimmta deildarleiknum í röð og það mjög sannfærandi.

Brighton var með mikla yfirburði í leiknum og sagðist Rosenior ekki geta varið þessa frammistöðu. Hann segir að hann og leikmenn þurfi að líta í spegil.

Frammistaðan var sú versta sem hann hefur séð á tímabilinu.

„Langversta. Þetta var óásættanlegt á öllum sviðum leiksins og viðhorfið sömuleiðis. Ég held áfram að koma fram og verja leikmennina. Það er ekki hægt að verja þessa frammistöðu og hvernig við fengum þessi mörk á okkur. Öll einvígin sem við töpuðum, skortur á ákefð. Eitthvað þarf að breytast og það strax.“

„Við þurfum að líta í spegil. Ég þarf að líta í spegil, en ég get ekki haldið áfram að koma hingað og verja sumt af því sem við erum að sjá. Við fengum ekki þau úrslit sem við vildum gegn Manchester United, en fannst við samt snúa blaðinu við. Það vantaði viðhorfið, andann og áræðnina hjá öllum nema kannski þremur eða fjórum í byrjunarliðinu. Það er langt frá því að vera nógu gott hjá þessu félagi. Ég ætla ekki að koma hingað og ljúga að ykkur. Ég segi sannleikann og hann er sá að þessi frammistaða var í alla staði óásættanleg.“

„Mörkin eru skelfileg. Við fáum auðveldan skalla, en klúðrum því. Ég var samt pirraðri yfir því sem gerði á undan. Það komu fjögur eða fimm tilvik þar sem við gátum sýnt hugrekki og gæði, tekið boltann niður og spilað honum. Við spörkuðum boltanum aftur til Brighton. Það er hægt að tala um skort á sjálfstrausti eða úrslit sem eru ekki að fara okkur í hag, en það endurspeglar ekki neitt af því sem ég vil sjá og ég mun aldrei sjá það aftur.“

„Fagmennskan var ekki til staðar. Þetta var ótúlega erfitt kvöld og það erfiðasta á ferlinum. Sumt af því sem ég varð vitni að í kvöld vil ég aldrei þurfa að sjá aftur,“
sagði Rosenior.
Slapp
banner
banner
banner