Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Saga sem virðist ekki ætla að fá „amerískan endi“
Neymar
Neymar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það verður ólíklegra með hverjum deginum að Neymar fari með Brasilíu á HM í sumar, en hann er hægt og rólega að mála sig út í horn hjá uppeldisfélagi sínu sem hefur ekki gengið vel á þessari leiktíð.

Neymar er markahæsti leikmaður í sögu brasilíska landsliðsins og dreymir um að spila á HM, sem yrði líklega hans síðasta stórmót á ferlinum.

Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, hefur ekki útilokað möguleikann á að velja Neymar, en líkurnar minnka með hverjum deginum sem líður. Áhættan er þó mikil enda hegðun hans oft verið til umræðu og síðasta sem Ancelotti vill gera er að skapa ójafnvægi í hópnum, rétt fyrir stærsta giggið.

Hann hefur átt leiki á tímabilinu þar sem hefur mátt sjást glitta í gamla Neymar, en svo koma fleiri leikir inn á milli þar sem hann virkar kærulaus.

Santos var að tapa gegn Fluminense, 3-2, í gær þegar Neymar tók upp á því að reyna eitt af „Joga Bonito“ brögðum sínum á miðsvæðinu og mínúta eftir af leiknum. Stuðningsmenn voru eðlilega ósáttir með þessa sýnisþörf hans og urðuðu á hann í leikslok.

Neymar setti fingur í eyrun er hann gekk inn í búningsklefa en fjölmiðlar hafa gagnrýnt hann harðlega síðustu vikur fyrir að rífast við stuðningsmennina og segja brasilískir fjölmiðlar að hann hafi verið að hella olíu á eldinn með þessu uppátæki. Santos hefur aðeins unnið tvo af síðustu tíu leikjum og er sem stendur aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsæti þegar tólf umferðir hafa verið leiknar.

Sjálfur útskýrði Neymar mál sitt á samfélagsmiðlum og sagði þetta ekki vera skilaboð til stuðningsmanna heldur hafi hann einfaldlega verið að klóra sér í eyrunum.

„Sá dagur er runninn upp þar sem ég þarf að útskýra það þegar ég er að klóra mér í eyrunum. Í alvöru talað, þið eruð að gera úlfalda úr mýflugu og farin algerlega yfir strikið. Það er sorglegt að þurfa að glíma við þetta. Engin manneskja getur þolað þetta,“ sagði Neymar.

Það má vel vera að hann hafi verið að klóra sér í eyrunum, en líka eðlilegt að fólk sé tortryggið enda hegðun hans í gegnum árin oft verið vafasöm og ekki í fyrsta sinn sem hann ögrar eða fer upp á móti stuðningsmönnum.

Þetta er vandamál sem Rene Simoes, fyrrum þjálfari Santos, varaði við árið 2010 er Neymar skaust fram á sjónarsviðið. Hann sagði sóknarmanninn ekki vera með mannasiði og óttaðist þá það versta eftir að Neymar reifst við hann og fyrirliða liðsins eftir leik gegn Atletico GO.

„Ég hef sjaldan séð jafn illa upp alinn strák og hann. Kennið honum mannasiði, annars verður hann að skrímsli,“ sagði Simoes.

Mögulega hefði Neymar átt að láta gott heita eftir síðustu leiktíð er hann spilaði meiddur og bjargaði Santos frá falli. Það hefði verið hinn fullkomni „ameríski endir“. Tölfræði hans á tímabilinu er alls ekki léleg, með fjögur mörk og þrjár stoðsendingar, en það er hávaðinn í kringum hann sem er enn og aftur að skemma fyrir.

Hann er í deilum við stuðningsmenn, liðsfélaga og í endalausri baráttu við brasilíska fjölmiðla. Ekki endirinn sem hann hafði séð fyrir sér og þá sérstaklega ef Ancelotti ákveður að taka hann ekki með á HM í sumar.


Slapp
banner
banner