Lisandro Martínez hefur fengið þriggja leikja bann eftir að hafa fengið rautt spjald fyrir að toga í hár Dominic Calvert-Lewin í tapi Manchester United gegn Leeds á Old Trafford.
Argentínumaðurinn verður því ekki til taks fyrr en í útileiknum gegn Sunderland þann 9. maí.
Michael Carrick, stjóri Manchester United, var allt annað en sáttur við að Lisandro hafi verið rekinn út af og gagnrýndi dóminn í viðtali eftir leik.

United vann 1-0 sigur á Chelsea síðastliðinn laugardag en voru þá aðeins með einn leikfæran hafsent. Þeir Noussair Mazraoui og Ayden Heaven voru þá í hafsentum.
Harry Maguire snýr þó aftur í leikmannahóp United í næsta leik gegn Brentford en hann tók út leikbann í síðustu tveimur leikjum.