Eina neikvæða við sigur Manchester City á Arsenal í titilbaráttu ensku úrvalasdeildarinnar í gær voru meiðsli spænska miðjumannsins Rodri, en Pep Guardiola, stjóri félagsins, veit ekki hversu lengi hann verður frá.
Rodri var frábær á miðsvæðinu hjá Man City sem náði að koma sér aftur inn í titilbaráttuna með sigrinum.
Lítið var eftir af leiknum og var útlit fyrir að allir kæmu heilir frá verkefninu en þá meiddist Rodri og þurfti að fara af velli. Nico kom inn á í hans stað.
Rodri hefur glímt við mikil meiðsli síðan hann kom til baka úr krossbandsslitum og gæti hann misst af enn einum leiknum á þessu tímabili.
„Ég veit ekki hversu lengi Rodri verður frá. Þetta var nárinn, eða læknirinn sagði það, en sjáum til. Við skoðum hann betur í dag,“ sagði Guardiola.
Man City á mikilvægan leik við Burnley á miðvikudag en þá getur liðið kom sér á toppinn í ensku úrvalsdeildinni.



