„Það er mikil tilhlökkun fyrir komandi tímabili í Mosfellsbæ. Síðustu þrjú ár hafa verið mjög eftirminnileg og lærdómsrík fyrir alla í félaginu og við erum spenntir að takast á við komandi sumar þar sem við munum leggja allt í sölurnar til að komast aftur upp í Bestu deildina,” segir Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, í samtali við Fótbolta.net.
Aftureldingu er spáð 4. sæti Lengjudeildarinnar af þjálfurum og fyrirliðum fyrir komandi tímabil.
Aftureldingu er spáð 4. sæti Lengjudeildarinnar af þjálfurum og fyrirliðum fyrir komandi tímabil.
Afturelding er að koma niður eftir eitt tímabil í Bestu deildinni. „Það var mjög skemmtileg reynsla fyrir félagið og leikmenn að spila í Bestu deildinni og heilt yfir var ég stoltur af frammistöðunni í langflestum leikjum þar."
„Eftir að hafa prófað að spila á meðal þeirra bestu þá viljum við að sjálfsögðu komast aftur þangað og það er markmiðið. Undanfarin ár hefur markmiðið hjá okkur alltaf verið að bæta liðið frá viku til viku og ár frá ári og það er engin breyting á því í ár. Við viljum verða ennþá betri á þessu tímabili og höfum trú á að við getum gert það," segir Maggi.
Með komu Birkis breyttist það aðeins til baka
Hvernig hefur gengið hjá ykkur í vetur?
„Undirbúningstímabilið var styttra en áður þar sem tímabilið kláraðist seinna í fyrra. Eftir rólega byrjun á undirbúningnum þá höfum við æft gríðarlega vel eftir áramót. Við fórum í góða æfingaferð þar sem liðsheildin varð ennþá sterkari og undanfarnar vikur hefur verið mikill stígandi og bæting í frammistöðu í leikjum."
Það hafa verið nokkrar breytingar á hopnum en Maggi er ánægður með stöðuna á honum.
„Ég hef verið mjög ánægður með alla nýju leikmennina sem hafa smollið vel inn í þetta hjá okkur bæði innan og utan vallar. Ungir og efnilegir leikmenn, sem koma úr öflugu yngri flokka starfi Aftureldingar, hafa líka tekið stærra pláss í hópnum og það verður spennandi að fylgjast með þeim vaxa áfram í sumar. Meðalaladurinn var búinn að minnka mikið síðan í fyrra en með komu Birkis Más þá breyttist það aðeins til baka sem er besta mál enda hefur hann gefið okkur mikið með reynslu sinni."
Markmiðið að komast aftur upp
Maggi sér fyrir sér að Lengjudeildin verði jöfn og skemmtileg þetta árið.
„Ég sé fyrir mér jafna og skemmtilega deild. Það eru mörg mjög öflug lið í deildinni í ár og mörg lið sem eru að leggja mikið í það að komast upp í Bestu deildina. Ég vonast eftir skemmtilegum leikjum og að stemningin í kringum Lengjudeildina haldi áfram að vaxa líkt og undanfarin ár."
„Markmið okkar er að komast aftur upp í Bestu deildina á sama tíma og við höldum áfram að bæta okkur sem lið. Það hefur verið mikil gleði í spilinu í síðustu leikjum hjá okkur og markmiðið er að sýna slíkt hið sama í sumar."
Eitthvað sem þú vilt bæta við að lokum?
„Það hefur verið magnað að finna stuðninginn hjá stuðningsmönnum Aftureldingar undanfarin ár. Stemningin á Malbikstöðinni að Varmá hefur verið geggjuð og við höfum líka fundið mikinn meðbyr í stúkunni á útileikjum. Ég vona að Mosfellingar haldi áfram að styðja vel við bakið á okkur því þessi stuðningur skiptir okkur svo sannarlega miklu máli."



