Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   mið 22. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Man City getur tekið toppsætið og sent Burnley niður
Man City getur tekið toppsætið og sent Burnley niður um deild
Man City getur tekið toppsætið og sent Burnley niður um deild
Mynd: EPA
Manchester City er í dauðafæri á að taka toppsætið af Arsenal þegar liðið heimsækir Burnley á Turf Moor klukkan 19:00 í kvöld.

City-menn unnu Arsenal í leik tímabilsins um síðustu helgi og eru aðeins þremur stigum á eftir erkifjendum sínum.

Þeir þurfa aðeins að vinna með tveimur mörkum til þess að taka toppsætið og setja pressu á Mikel Arteta og lærisveina hans í Arsenal.

Burnley fellur niður um deild með tapi, en liðið er í næst neðsta sæti með 20 stig, þrettán stigum frá öruggu sæti.

Bournemouth og Leeds eigast þá við á Vitality-leikvanginum. Bournemouth er í 8. sæti með 48 stig og í baráttu um Evrópusæti á meðan Leeds er í 15. sæti með 39 stig.

Leikir dagsins:
19:00 Bournemouth - Leeds
19:00 Burnley - Man City
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner