Gift Orban, leikmaður Hellas Verona á Ítalíu, gæti verið í vandræðum eftir að hafa ráðist á ósáttan aðdáanda eftir 1-0 tap liðsins gegn Milan í ítölsku deildinni í gær.
Adrien Rabiot var hetja Milan en hann skoraði undir lok fyrri hálfleiks.
Adrien Rabiot var hetja Milan en hann skoraði undir lok fyrri hálfleiks.
Ítalski miðillinn Correre dello Sport greinir frá því að Orban hafi neitað að stöðva bílinn sinn til að taka mynd af sér með aðdáandanum.
Maðurinn brást illa við og lamdi bílinn. Orban steig út og réðst á manninn en atvikið náðist á myndband.
„Hellas Verona FC, með vísan til atvikanna sem áttu sér stað eftir leik Hellas Verona og Mílanó á bílastæðinu við hliðina á Bentegodi leikvanginum, þar sem leikmaðurinn Gift Orban og hópur stuðningsmanna komu við sögu, tekur afstöðu gegn og fordæmir hvers kyns ofbeldishegðun,“ sagði í yfirlýsingu frá Hellas Verona.
„Félagið mun halda áfram að safna og meta viðeigandi upplýsingar.“
Gift Orban s'est battu dans la rue contre un fan qui aurait tapé sa voiture ????????pic.twitter.com/yML4XK87Fh
— Vibes Foot (@VibesFoot) April 20, 2026



