Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Lens í bikarúrslit í fyrsta sinn í 28 ár
Lens er komið í bikarúrslit
Lens er komið í bikarúrslit
Mynd: RC Lens
Lens er komið í bikarúrslit í Frakklandi í fyrsta sinn síðan 1998 en það tókst með sannfærandi 4-1 sigri liðsins á Toulouse í kvöld.

Á dögunum mættust þessi lið í deildinni þar sem Lens setti met er það skaut 42 sinnum á mark Toulouse í ótrúlegum 3-2 sigri þar sem markið kom seint í uppbótartíma.

Tilraunirnar voru aðeins færri í kvöld, en þó sextán talsins og tókst Lens að skora fjögur mörk og senda Toulouse heim.

Florian Thauvin skoraði og lagði síðan upp fyrir Allan Saint-Maximin áður en Santiago Hidalgo minnkaði muninn. Matthieu Udol setti þriðja fyrir Lens á 35. mínútu áður en franski miðjumaðurinn Adrien Thomasson gerði fjórða marki stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Lens flaug áfram í úrslit og spilar þar í fyrsta sinn síðan 1998.

Andstæðingur Lens var þá PSG og tapaðist sá leikur 2-1, en í þetta sinn verður andstæðingurinn Nice eða Strasbourg sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum á morgun.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner