Heiðar Ægisson, leikmaður Stjörnunnar, sneri aftur á völlinn á föstudag eftir að hafa verið frá í rúmt ár vegna krossbandaslita.
Hann lék síðasta korterið í dramatískum sigri Stjörnunnar á FH á föstudag. Andri Rúnar Bjarnason skoraði sigurmark Garðbæinga á 86. mínútu.
Hann lék síðasta korterið í dramatískum sigri Stjörnunnar á FH á föstudag. Andri Rúnar Bjarnason skoraði sigurmark Garðbæinga á 86. mínútu.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 2 FH
Heiðar, sem er þrítugur hægri bakvörður, er uppalinn hjá Stjörnunni og hefur allan sinn feril leikið með liðinu ef frá er talið tímabilið 2022 þegar hann var hjá Val.
„Þetta er frábært. Eins og ég sé hann að þá er hann einn sterkasti varnarmaður deildarinnar og hann var frá allt síðasta tímabil. Frábært að sjá hann, uppalinn í Stjörnunni líka. Stuðningsmenn vafalítið glaðir að sjá hann aftur inni á vellinum,“ sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir leik á föstudag.



