Nýkrýndir Þýskalandsmeistarar Bayern München mæta Bayer Leverkusen í undanúrslitum bikarsins klukkan 18:45 í kvöld, en spilað er á BayArena, heimavelli Leverkusen.
Bæjarar eru sjóðandi heitir á þessu tímabili. Þeir unnu deildina um helgina og lifir draumurinn áfram um að vinna hina eftirsóttu þrennu, en liðið er einnig komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Leverkusen varð bikarmeistari í annað sinn árið 2024 á meðan Bayern hefur ekki unnið hann síðan 2020.
Leikur dagsins:
18:45 Leverkusen - Bayern




