Inter 3 - 2 Como
0-1 Martin Baturina ('32 )
0-2 Lucas Da Cunha ('48 )
1-2 Hakan Calhanoglu ('69 )
2-2 Hakan Calhanoglu ('86 )
3-2 Petar Sucic ('89 )
0-1 Martin Baturina ('32 )
0-2 Lucas Da Cunha ('48 )
1-2 Hakan Calhanoglu ('69 )
2-2 Hakan Calhanoglu ('86 )
3-2 Petar Sucic ('89 )
Hakan Calhanoglu og Petar Sucic leiddu ótrúlega endurkomu Inter í 3-2 sigri á Como og komu liðinu í úrslitaleik ítalska bikarsins.
Liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri undanúrslitaleiknum á heimavelli Como en liðin voru að mætast í þriðja sinn á stuttum tíma eftir að hafa mæst líka í deildinni.
Como kom sér í þægilega 2-0 stöðu. Á 32. mínútu skaut Martin Baturina boltanum í stöng og inn áður en Lucas Da Cunha tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik.
Da Cunha fékk boltann á hægri vængnum og voru Inter-menn að búast við að hann myndi koma honum inn á teiginn, en í staðinn keyrði hann upp að markinu og afgreddi boltann snyrtilega neðst í vinstra hornið.
Como lærði ekkert af deildarleiknum sem liðin spiluðu á dögunum, en þar komst liðið einnig 2-0 yfir en glutraði forystunni og tapaði, 4-3.
Þeir Petar Sucic og Hakan Calhanoglu leiddu endurkomu Inter í kvöld. Calhanoglu skoraði á 69. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Sucic og jafnaði Tyrkinn metin fjórum mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma, aftur eftir stoðsendingu Sucic.
Calhanoglu endurlaunaði honum greiðann undir lokin. Þeir félagarnir spiluðu sín á milli áður en Calhanoglu kom frábærum bolta á miðjan teiginn á Sucic sem skaut Inter áfram í úrslitaleikinn.
Inter mætir Atalanta eða Lazio í úrslitaleiknum, þar sem Mílanó-liðið stefnir að því að vinna bikarinn í tíunda sinn í sögunni.



