Franska félagið Marseille er alvarlega að íhuga að selja enska sóknarmanninn Mason Greenwood á sölulista í sumar en hegðun hans hefur verið til skoðunar síðustu vikur samkvæmt franska blaðinu RMCSport.
Þrátt fyrir að hafa komið að 21 marki í frönsku deildinni er Greenwood ekki ósnertanlegur og í raun er líklegra en ekki að hann verði seldur.
RMC segir þjálfara og stjórn liðsins óánægða með áhugaleysi Greenwood og sérstaklega eftir uppgjöfina sem hann sýndi í 2-0 tapinu gegn Lorient á dögunum.
Greenwood er ekki að tengja við liðsfélaga sína og er þá sagður latur á æfingum.
Marseille gæti því sett hann á sölulista í sumar til þess að fá sem allra mest fyrir hann, en hann hefur verið orðaður við stórlið á borð við Barcelona og Juventus ásamt félögum í ensku úrvalsdeildinni.
Englendingurinn er ekki sá eini sem hefur verið gagnrýndur en Daninn Pierre-Emile Höjbjerg hefur verið skugginn af sjálfum sér síðustu viku.
Marseille er í 6. sæti frönsku deildarinnar og gæti átt hættu á að missa af Meistaradeildarsæti. Ef það gerist mun félagið líklega endurbyggja hópinn og losa sig við leikmenn sem eru ekki með hausin við efnið.



