Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gefur út íslenska appið Football Mobility - Hvað er það?
Margrét Lilja Burrell
Margrét Lilja Burrell
Mynd: FM aðsent
Mynd: FM aðsent
Mynd: FM aðsent
Mynd: FM aðsent
Mynd: FM aðsent
Margrét Lilja Burrell mun í næsta mánuði koma með íslenskt smáforrit - app - á markað.

Football Mobility heitir það og í appinu verða æfingar sem hjálpa fótboltamönnum að auka hreyfifærni og fyrirbyggja meiðslahættu.

Við ræddum við Margréti um appið.

Hvað er Football Mobility?

Football Mobility er app fyrir fótboltafólk sem hjálpar leikmönnum að byggja upp betri rútínu utan vallar og hugsa betur um líkamann sinn á milli æfinga og leikja þannig endurheimt verði eðlilegur hluti af daglegri rútínu, ekki bara eitthvað sem er gert þegar vandamál koma upp.

Hver er tilgangur þess?

Tilgangurinn er að hjálpa leikmönnum að halda sér heilum og tilbúnum til að spila því þú átt bara einn líkama. Þrátt fyrir að mörg lið séu með sjúkraþjálfara og lækna, geta meiðsli haft mikil áhrif á ferilinn og jafnvel bundið enda á hann. Við viljum hjálpa leikmönnum að hugsa betur um líkamann sinn áður en vandamálin koma upp.

Hver er hugmyndin á bakvið forritið?

Hugmyndin kom út frá minni eigin reynslu í íþróttum og því að hafa verið mikið í kringum fótbolta umhverfið, þar sem ég sá hvað vantaði þegar kemur að endurheimt og daglegri rútínu utan vallar. Síðar þróaðist hugmyndin einnig yfir í að innihalda styrktar og uppbyggjandi æfingar sem styðja við líkamann til lengri tíma. Ég var sjálf mikið í CrossFit á tímabili þar sem endurheimt er stór hluti af daglegri rútínu og var að nota öpp eins og GoWOD.

Á sama tíma sá ég að margir fótboltamenn eru oft meiddir eða að glíma við einhvers konar óþægindi sem hafa áhrif á hvernig þeir hreyfa sig en það er oft ekkert sem þeir eru að gera reglulega til að bæta það.

Þá fór ég að hugsa: af hverju er þetta ekki stærri hluti af daglegri rútínu hjá fótboltamönnum? Oft fær þetta ekki mikla athygli fyrr en eitthvað fer að hafa áhrif eða vandamál koma upp. Þar kviknaði hugmyndin að Football Mobility að búa til einfalt og aðgengilegt kerfi sem hjálpar leikmönnum að hugsa betur um líkamann sinn utan vallar og halda sér heilum og tilbúnum til að spila

Hvar verður hægt að nálgast forritið?

Forritið verður aðgengilegt í síma, bæði á iOS og Android, þannig leikmenn geta notað það hvar og hvenær sem er.

Mun það koma til með að kosta?

Já, forritið verður áskriftarþjónusta, en leikmenn geta prófað það frítt áður en þeir skuldbinda sig. Markmiðið er að hafa það aðgengilegt þannig að sem flestir geti nýtt sér það.

Sá sem nær í forritið, hvað fær hann?

Notandinn fær einfalt og aðgengilegt kerfi til að hugsa betur um líkamann sinn á milli æfinga og leikja. Í appinu eru stuttar, leiðbeinandi æfingar fyrir daglega rútínu, fyrir og eftir æfingar, ásamt æfingum með mismunandi búnaði, svo sem nuddboltum, nuddrúllu og fleiru, og styrktar og uppbyggjandi æfingum sem miða að því að draga úr líkum á algengustu meiðslum í fótbolta. Hugmyndin er að notandinn þurfi ekki að hugsa, appið leiðir hann í gegnum ferlið og hann einfaldlega fylgir.

Appið er heldur ekki bara fyrir leikmenn, heldur geta þjálfarar, dómarar og einnig foreldrar nýtt sér það, til dæmis til að setja gott fordæmi og hugsa betur um eigin líkama. Þó að sum lið séu með sterkt teymi í kringum sig, þá á það alls ekki við um alla. Margir þurfa að sjá um þetta sjálfir, og þá skiptir máli að hafa einfalt kerfi sem hjálpar þeim að gera litlu hlutina rétt og hugsa betur um líkamann sinn til lengri tíma.

Ertu búin að gera einhverjar prófanir, fá viðbrögð frá prufunotendum?

Já, ég fékk stelpur úr FHL til að taka þátt í fyrstu prófunum á appinu og hef einnig verið dugleg að fá endurgjöf frá öðrum leikmönnum. Í byrjun tók ég reglulega fundi með þeim, fékk endurgjöf og spurði spurninga, sem hjálpaði mér að þróa appið áfram.

Við höfum líka prófað þetta með mismunandi hópum, og það hefur ekki alltaf verið sjálfgefið að allir taki þetta strax upp. Það hefur hins vegar hjálpað okkur að skilja betur hvað þarf til að halda notendum inni og gera appið enn einfaldara og aðgengilegra.

Viðbrögðin hafa verið góð, sérstaklega þegar kemur að einföldum og stuttum æfingum sem passa inn í daglegt líf.

Auðvitað tekur tíma að þróa svona vöru og breyta venjum, en við erum stöðugt að vinna í því að gera appið einfaldara og aðgengilegra út frá endurgjöf notenda og sjáum klárlega að það er þörf fyrir svona lausn.

Hver er Margrét Lilja?

Þegar stórt er spurt fékk ég bestu vinkonu mína, Telmu Ívarsdóttir, markvörð hjá Inter, til að lýsa mér. Hún svaraði því svona:

Margrét Lilja Burrell er ein af þessum manneskjum sem þú gleymir ekki þegar þú kynnist henni. Hún er ákveðin, veit hvað hún vill og fer alla leið til að ná því. Hún leggur sig alltaf 100% fram í það sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún hefur sterkan drifkraft, en það sem gerir hana ekki síður sérstaka er hlýjan og einlægnin sem hún ber með sér. Hún er sannkallaður stuðningsmaður nr.1, 2 og 3 fyrir fólkið í kringum sig hvetur, hlustar og lyftir öðrum upp þegar mest á reynir.

Ef ég ætti að lýsa mér sjálf, þá er ég manneskja sem tekur ekki nei sem endanlegu svari og finn alltaf leiðir til að ná markmiðunum mínum. Ég legg mig alltaf 100% fram, er hreinskilin og ekki mikið fyrir að dansa í kringum hlutina en á sama tíma með góðan húmor. Þetta er ekki flókið.

Að lokum langar mig að segja að ef þú hefur áhuga á Football Mobility, þá geturðu fylgt okkur á Instagram eða TikTok og skráð þig á póstlista á heimasíðunni.
Slapp
banner
banner
banner