Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
banner
   mán 20. apríl 2026 20:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Wolves féll í kvöld
Mynd: EPA
Crystal Palace 0 - 0 West Ham

Crystal Palace fékk West Ham í heimsókn í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. West Ham gat komist fjórum stigum frá fallsæti með sigri og þá gat Crystal Palace blandað sér í baráttuna um Evrópusæti með sigri.

Brennan Johnson var nálægt því að koma Palace yfir eftir tuttugu mínútna leik en hann átti skalla rétt framhjá.

Taty Castellanos var nálægt því að koma West Ham yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar hann átti bakfallspyrnu í átt að marki en Maxence Lacroix bjargaði á síðustu stundu. Stuttu síðar átti Konstantinos Mavropanos fastann skalla að marki en Dean Henderson varði frábærlega.

Seinni hálfleikurinn var frekar tíðindalítill en Ismaila Sarr kom boltanum í netið þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Markið var hins vegar dæmt af þar sem boltinn kom til hans af hendinni á Jean-Philippe Mateta.

Fleira markvert gerðist ekki og markalaust jafntefli var niðurstaðan. Þessi úrslit þýða að Wolves er endanlega fallið. West Ham er í 17. sæti með 33 stig, aðeins tveimur stigum á undan Tottenham. Crystal Palace er í 13. sæti með 43 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 36 23 8 5 75 32 +43 77
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
9 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
10 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner
banner