Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   sun 22. ágúst 2021 13:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arsenal að rifta samningi sínum við Kolasinac
Mynd: Getty Images
Sead Kolasinac er að yfirgefa Arsenal eftir að samningi hans við félagið var rift.

Hann hefur ekki verið í myndinni hjá Mikel Arteta en hann var á láni hjá Schalke á síðustu leiktíð. Hann var á stórum launatékka hjá Arsenal en hann var með 100 þúsund pund í vikulaun.

Hann átti eitt ár eftir af samningnum og hann hefur samþykkt að fá aðeins brot af laununum greitt út samninginn.

Fenerbache er sagt vera næsti áfangastaður hans en Mesut Özil fyrrum samherji hans hjá Arsenal er leikmaður Fenerbache og mælti með honum fyrir liðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner