Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
   þri 25. júní 2013 20:19
Arnar Daði Arnarsson
Jón Óli: Þessi andskoti frá Jamaíka
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV bar sigur úr bítum gegn FH í Pepsi-deild kvenna, 3-1 í kvöld. Jón Ólafur þjálfari ÍBV var ánægður með sigurinn og taldi þetta vera sanngjarnan sigur.

Lestu um leikinn: FH 1 -  3 ͍BV

,,Við fengum frekar óvænt á okkur markið. Stórglæsilegt mark. En við héldum skipulagi og héldum haus og það var vendipunktur að ná að jafna fyrir hálfleik," sagði Jón Óli þjálfari Eyjastelpna.

ÍBV hefur átt í erfiðleikum með FH í undanförnum leikjum og Jón Óli var farinn að hugsa til þess þegar FH komst yfir,

,,Ég hugsaði "Jájá, svona er þetta bara. Ég kem aldrei hingað og vinn". En sem betur fer er þetta ekki álög," sagði Jón Óli léttur í bragði.

,,FH átti stangar skot í seinni hálfleik en ég held að það hafi verið eina marktækifæri þeirra í þeim hálfleik. Shaneka fer tvisvar til þrisvar sinnum ein gegn markverði þeirra í seinni hálfleik svo ég held að þetta hafi verið algjörlega sanngjarn sigur," og talandi um færin sem Shaneka fékk í leiknum, þá er þetta ekki nýtt á nálinni hjá henni, hún skorar vissulega mörk en þarf til þess ansi mörg færi og því er Jón Ólafur sammála.

,,Þessi andskoti frá Jamaíka er óúreiknanleg. Hún skilur ekki sjálfan sig og hvað þá við hin. Það er vonandi að færanýtingin hjá henni fari að lagast hjá henni.

Viðtalið við Jón Ólaf er hægt að sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner