Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   þri 25. júlí 2023 20:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Láki fékk áminningu: Það má víst ekki labba inn á völlinn
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór vann góðan sigur á Gróttu í Lengjudeildinni í dag en þetta var fyrsti sigur liðsins í rúman mánuð.

„Mikilvægt fyrir okkur, langt síðan við höfum unnið leik og við komum okkur aftur þangað sem við höfum verið að stefna á, aftur í umspilssæti," sagði Láki.


Lestu um leikinn: Þór 3 -  1 Grótta

„Mér fannst Gróttu menn byrja betur, þetta var rosalega opið. Það var mikið af opnunum og færum en vantaði gæði hjá báðum liðum á síðasta þriðjungi. Annað markið kláraði leikinn, skorum í byrjun síðari hálflleiks og mér fannst við miklu betri aðilinn í síðari hálfleik," sagði Láki.

Grótta skoraði í kjölfarið á innkasti.

„Þeir eru gríðarlega hættulegir í uppsettum atriðum og ógnuðu eingöngu þannig þannig þetta var bara sanngjarnt."

Elmar Þór Jónsson verður væntanlega ekki með Þórsurum gegn Leikni fyrir sunnan um helgina þar sem hann snéri upp á ökklann í dag. Leikurinn var stopp í dágóðan tíma á meðan Elmar fékk aðhlynningu.

Láki fékk að líta gula spjaldið á meðan leikurinn var stopp.

„Ég fór inn á völlinn að gefa leikmanni skilaboð því það var allt stopp. það má víst ekki labba inn á völlinn," sagði Láki.


Athugasemdir
banner
banner