Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   mán 25. nóvember 2019 21:34
Brynjar Ingi Erluson
Guðlaugur Victor spilaði í mikilvægum sigri
Guðlaugur Victor Pálsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Darmstadt unnu Hannover 2-1 í þýsku B-deildinni í kvöld.

Guðlaugur Victor er fastamaður í liði Darmstadt og spilaði allan leikinn í dag.

Hann hefur verið magnaður með liðinu á leiktíðinni og verið þrisvar valinn í lið vikunnar af Kicker.

Waldemar Anton kom Darmstadt yfir áður en Genki Haraguchi jafnaði tíu mínútum síðar. Tobias Kempe skoraði svo sigurmarkið tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks.

Liðið komst upp í 18 stig með sigrinum í dag og er átta stigum frá umspilssæti.

Guðlaugur Victor hefur spilað síðustu fjóra A-landsleiki og hefur fest sæti sitt í hægri bakverðinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner