Það var nóg um að vera hjá Íslendingunum okkar sem léku erlendis í dag og í kvöld þar sem Nökkvi Þeyr Þórisson byrjaði í afar mikilvægum sigri Telstar í efstu deild hollenska boltans.
Telstar kenndi NAC Breda lexíu í sex stiga fallbaráttuslag þar sem lokatölur urðu 3-0. Nökkvi spilaði fyrstu 73 mínúturnar í fremstu víglínu og var skipt af velli í stöðunni 1-0. Patrick Brouwer sem kom inn af bekknum í stað Nökkva skoraði eitt markanna.
Telstar er í fallsæti með 21 stig eftir 25 umferðir, þremur stigum frá öruggu sæti. Breda er með einu stigi meira.
Í næstefstu deild sat Helgi Fróði Ingason á bekknum og horfði á liðsfélaga sína í Helmond steinliggja gegn varaliði Ajax, 5-1. Helmond siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar 32 stig eftir 29 umferðir. Jong Ajax er á botninum með 26 stig en ekki er hægt að falla úr deildinni.
Í Þýskalandi byrjaði Valgeir Lunddal Friðriksson leikinn í liði Fortuna Düsseldorf í næstefstu deild en þurfti að fara meiddur af velli eftir 20 mínútur sem eru afar slæmar fréttir. Valgeir er aðeins nýlega búinn að ná sér eftir erfið meiðsli og vonast til að þetta sé ekki of alvarlegt.
Liðsfélagar hans unnu að lokum 2-1 gegn Bochum og er Düsseldorf komið fimm stigum frá fallsvæðinu eftir þennan sigur.
Í þriðju efstu deild varði Lúkas Jóhannes Blöndal Petersson markið hjá varaliði Hoffenheim sem tapaði heimaleik gegn 1860 München. Hoffenheim var betra liðið en nýtti ekki færin sín svo lokatölur urðu 1-2.
Hoffenheim II er með 32 stig eftir 26 umferðir, átta stigum fyrir ofan fallsvæðið, þrátt fyrir hörmulegt gengi undanfarnar vikur. Liðið er búið að tapa sex leikjum og gera eitt jafntefli í síðustu sjö umferðum.
Í næstefstu deild í Danmörku lék Ísak Snær Þorvaldsson fyrstu 67 mínúturnar í sigri Lyngby á heimavelli gegn Kolding. Lokatölur urðu 2-0 og sat Ari Leifsson allan tímann á bekknum hjá gestaliði Kolding. Lyngby er á toppi deildarinnar eftir þennan sigur, með 35 stig eftir 19 umferðir. Kolding er með 26 stig.
Álaborg gerði þá fjörugt jafntefli við Hilleröd sem er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Lyngby í harðri toppbaráttu sem er mikið líf í. Hinn 19 ára gamli Nóel Atli Arnórsson fékk að spila síðustu tíu mínúturnar en tókst ekki að hjálpa AaB að landa sigri.
Álaborg náði forystunni á lokakafla leiksins en gestirnir í liði Hilleröd fengu vítaspyrnu á lokamínútunum og jöfnuðu, svo lokatölur urðu 3-3. Álaborg er með 27 stig - átta stigum á eftir toppliði Lyngby.
Í C-deild á Ítalíu lék Kristófer Jónsson allan leikinn í tapi Triestina sem fellur niður í D-deild. Þá komu einnig Íslendingalið við sögu i æfingaleikjum.
Kolbeinn Birgir Finnsson var í byrjunarliði Vålerenga sem lagði Rosenborg að velli og var Ólafur Guðmundsson í byrjunarliði Álasundar sem steinlá gegn Molde. Davíð Snær Jóhannsson byrjaði á bekknum.
Í næstefstu deild í Belgíu var Patrik Sigurður Gunnarsson hvergi sjáanlegur hjá Kortrijk, en hann er að glíma við meiðsli og hefur ekki verið í hóp síðan um jólin. Kortrijk vann á heimavelli og er í frábærri stöðu í toppbaráttunni. Kortrijk er í öðru sæti með níu stiga forystu á næsta lið og stefnir því upp í efstu deild.
Að lokum fóru æfingaleikir fram í kvennaboltanum þar sem Växjö tapaði gegn Malmö á meðan Rosenborg rúllaði yfir Molde. Marie Jóhannsdóttir var í byrjunarliði Molde, en Amanda Jacobsen Andradóttir var ekki í hóp eftir félagaskipti frá hollenska stórveldinu Twente.
Telstar 3 - 0 NAC Breda
Jong Ajax 5 - 1 Helmond
Dusseldorf 2 - 1 Bochum
Hoffenheim II 1 - 2 1860 Munchen
Lyngby 2 - 0 Kolding
Aalborg 3 - 3 Hillerod
Rosenborg 0 - 1 Valerenga
Molde 4 - 1 Aalesund
Kortrijk 3 - 1 RFC Liege
Vaxjö 2 - 4 Malmö
Rosenborg 5 - 1 Molde
Athugasemdir



