Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fös 27. febrúar 2026 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak spilaði seinni hálfleikinn í Augsburg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Augsburg 2 - 0 Köln
1-0 Rodrigo Ribeiro ('55 )
2-0 Alexis Claude-Maurice ('95)

Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn í Augsburg, þar sem heimamenn tóku á móti Köln í þýska boltanum.

Bæði lið fengu hálffæri í jöfnum fyrri hálfleik og var Ísaki Bergmanni Jóhannessyni skipt inn af bekknum í hálfleik.

Leikurinn var áfram nokkuð jafn nema að heimamönnum tókst að skapa bestu færin og skoraði Rodrigo Ribeiro með laglegri hælspyrnu af stuttu færi eftir lága fyrirgjöf á 55. mínútu. Tvítugur Ribeiro var fenginn úr röðum Sporting CP í janúarglugganum og er núna búinn að skora í tveimur byrjunarliðsleikjum í röð.

Köln leitaði allra leiða en tókst ekki að jafna metin. Þess í stað innsigluðu heimamenn sigurinn seint í uppbótartíma þegar Alexis Claude-Maurice skoraði í autt mark eftir skyndisókn. Markvörður Kölnar fór fram í hornspyrnu og lagði Claude-Maurice boltann þægilega í netið af um 40 metra færi.

Hann sigldi þannig dýrmætum sigri í höfn. Augsburg er með 31 stig eftir 24 umferðir, sjö stigum meira heldur en Ísak og félagar sem eru aðeins fjórum stigum frá fallsæti eftir slakt gengi undanfarinna vikna. Köln er aðeins búið að vinna einn leik af síðustu sex í deildinni.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 26 21 4 1 93 25 +68 67
2 Dortmund 26 17 7 2 55 26 +29 58
3 Hoffenheim 26 15 5 6 54 34 +20 50
4 Stuttgart 26 15 5 6 51 34 +17 50
5 RB Leipzig 26 14 5 7 48 35 +13 47
6 Leverkusen 26 13 6 7 49 33 +16 45
7 Frankfurt 26 10 8 8 49 49 0 38
8 Freiburg 26 9 7 10 37 43 -6 34
9 Union Berlin 26 8 7 11 31 42 -11 31
10 Augsburg 26 9 4 13 31 45 -14 31
11 Hamburger 26 7 9 10 29 37 -8 30
12 Gladbach 26 7 7 12 30 43 -13 28
13 Mainz 26 6 9 11 31 41 -10 27
14 Köln 26 6 7 13 35 44 -9 25
15 Werder 26 6 7 13 29 47 -18 25
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 26 5 6 15 35 56 -21 21
18 Heidenheim 26 3 5 18 24 58 -34 14
Athugasemdir
banner
banner