„Þetta var okkar slakasti leikur í nokkurn tíma, sérstaklega fyrri hálfleikurinn," sagði Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, eftir að liðið tapaði 2-3 fyrir Breiðabliki í úrslitum Lengjubikarsins í dag.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 2 Valur
„Þeir voru komnir í 2-0 eftir tíu mínútur. Við komum frekar daprir inn í þennan leik. Við lærum margt af þessum leik. seinni hálfleikur var betri en sá fyrri. Við komum til baka og getum alveg tekið eitthvað jákvætt úr þessu. Við höfum spilað vel í Lengjubikarnum og höfum fengið alvöru leiki fyrir Íslandsmótið."
Leikurinn í dag var spilaður í slæmu veðri, það rigndi en um tíma var haglél auk þess sem mikill vindur blés.
„Bæði lið hefðu frekar viljað spila inni en þetta var fínt. Við eigum eftir að lenda í svona veðri í sumar og fínt að taka leiki í svona veðri."
Hann segir að mikil tilhlökkun sé kominn í hópinn fyrir Pepsi-deildina.
„Við höfum ekki sett okkur nein markmið hvar við ætlum að enda í deildinni en setjumst núna niður og plönum vikuna fram að móti og förum yfir þessi mál."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















