Juve reynir við Kolo Muani og Zirkzee - Mateta orðaður við Spurs - Fundað um Maguire
   fim 29. janúar 2026 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sara Björk lagði upp í frábærum sigri
Kvenaboltinn
Mynd: Al Qadsiah
Al-Qadsiah 4-1 Al-Nassr

Sara Björk Gunnarsdóttir lagði upp mark í frábærum 4-1 sigri Al-Qadsiah gegn Al-Hilal í sádi arabísku deildinni í dag.

Al-Qadsiah var með 2-1 forystu í hálfleik eftir að hafa lent undir strax í upphafi leiks.

Lea Le Garrec skoraði sitt annað mark og þriðja mark liðsins eftir sendingu frá Söru Björk. Stuttu síðar kom fjórða markið sem innsiglaði 4-1 sigur Al-Qadsiah.

Liðið fór upp fyrir Al-Hilal í 2. sæti deildarinnar en liðin eru bæði með 15 stig eftir 8 umferðir. Liðin eru sex stigum á eftir toppliði Al-Nassr sem á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner