Derek McInnes, stjóri skoska liðsins Hearts, segir að sínir menn þurfi að njóta þess að vera í þeirri stöðu að geta unnið skoska meistaratitilinn.
Tómas Bent Magnússon er meðal leikmanna Hearts en liðið er með tveggja stiga forystu á Rangers þrátt fyrir að hafa tapað toppslagnum síðasta sunnudag. Celtic er stigi á eftir Rangers og á leik til góða.
Það er gríðarleg spenna þegar ellefu umferðir eru eftir en velgengni Hearts hefur komið mjög á óvart.

„Það er pressa sem við setjum á okkur sjálfa en það er pressa á öllum liðum núna. Ég vil frekar vera undir þessari pressu heldur en þeirri sem eru á liðunum í fallbaráttunni," segir McInnes.
„Við þurfum að höndla þessari pressu. Það er mitt starf og hjá teyminu að halda mönnum á brautinni, halda hugarfarinu réttu."
Næsti leikur Hearts er gegn Falkirk sem er í sjötta sæti.
Athugasemdir