Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   þri 17. febrúar 2026 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tvær stjörnur snúa aftur gegn Íslandi
Kvenaboltinn
Lauren James.
Lauren James.
Mynd: EPA
Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Evrópumeistara Englands, hefur opinberað landsliðshópinn sem mætir meðal annars Íslandi í undankeppni HM í mars.

Wiegman valdi 25 leikmenn en landsliðsfyrirliðinn Leah Williamson snýr aftur í hópinn eftir að hafa glímt við meiðsli. Hún var síðast með þegar England vann EM síðasta sumar.

Lauren James, sem er stórkostlegur kantmaður, snýr einnig aftur í hópinn eftir meiðsli. Hún er systir Reece James, fyrirliða Chelsea.

Ella Toone, leikmaður Manchester United, er þó á meðal þeirra leikmanna sem missa af verkefninu. Það sama má segja um Beth Mead, sem spilar með Arsenal.

Leikur Englands og Íslands fer fram á heimavelli Nottingham Forest þann 7. mars.


Athugasemdir
banner
banner
banner