Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Telja það „klikkun" ef Maguire fær ekki nýjan samning
Harry Maguire.
Harry Maguire.
Mynd: EPA
Leikmenn Manchester United eru ekki í neinum vafa um að Harry Maguire eigi að fá nýjan samning hjá félaginu.

Hinn 32 ára gamli Maguire hefur verið í lykilhlutverki hjá United eftir að Michael Carrick tók við liðinu.

Samningur Maguire rennur út eftir tímabilið en viðræður hafa verið í gangi milli hans og félagsins.

Samkvæmt heimildarmönnum götublaðsins The Sun telur leikmannahópur United að Maguire eigi það fyllilega skilið að fá nýjan samning. Í raun er afstaðan innan búningsklefans sú að það væri „klikkun" að gefa honum ekki nýjan samning.

Tími Maguire hjá Man Utd - eftir félagaskipti hans frá Leicester árið 2019 - hefur einkennst af hæðum og miklum lægðum. Undanfarið hefur hann hins vegar spilað mjög vel.
Athugasemdir
banner
banner
banner