Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 11:24
Elvar Geir Magnússon
Ítalía sker sig úr og vill meira VAR
Dómari á Ítalíu gefur VAR merki.
Dómari á Ítalíu gefur VAR merki.
Mynd: EPA
Enskir dómarar þykja ansi lélegir í notkun á VAR.
Enskir dómarar þykja ansi lélegir í notkun á VAR.
Mynd: EPA
Eins og oft áður er VAR myndbandsdómgæslutæknin mikið í umræðunni en BBC ákvað að kanna hvernig litið er á þessa tækni í stærstu deildum Evrópu.

Enskir dómarar hafa fengið mikla gagnrýni fyrir það að vera lélegir í notkun á VAR. Þrátt fyrir tæknina er allt morandi í umdeildum ákvörðunum, ósamræmi og mistökum í dómgæslu enska boltans.

Þá þykir mörgum sem tæknin drepi tempóið úr leikjum og minnka ástríðuna þar sem leikmenn óttast að fagna mörkum sem síðan verða dæmd af.

VAR er ekki vinsælt í Þýskalandi þar sem stuðningsmenn mótmæla myndbandsdómgæslunni reglulega og vilja hana burt. Svipað er á teningnum á Spáni og í franska boltanum eru stór mistök gerð í hverri viku þrátt fyrir VAR.

Ítalska A-deildin sker sig hinsvegar úr. Davide Chinellato, blaðamaður La Gazzetta dello Sport, segir að á Ítalíu vilji menn ekki bara vera með VAR heldur einnig að auka valdsviðið.

„Hinn hefðbundni fótboltaáhugamaður getur ekki ímyndað sér nútímafótbolta án VAR. Menn vilja að öll augljós mistök séu leiðrétt með VAR. Þegar mistök eru ekki leiðrétt þá kenna menn ekki VAR um heldur þeim sem eru ábyrgir fyrir notkuninni," segir hann.

Ítalska deildin er hlynnt því að VAR verði meðal annars notað til að skoða hornspyrnudóma og seinni gul spjöld.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner